Alhliða íþróttaþjálfun fyrir börn
Handboltinn hyggst feta nýjar slóðir í vetur þar sem boðið verður uppá æfingu í fimleikum (fyrir 1.-4. bekk) og frjálsum íþróttum (fyrir 5.-8. bekk) samhliða handboltaæfingum í Fjölni. Þannig mun ein æfing í viku í fimleikum/frjálsum standa iðkendum til boða fyrir vægt aukagjald til viðbótar við námskeiðsverð handboltans. Verða þær æfingar til viðbótar hefðbundnum æfingum.
Styrkleikar þessara tveggja íþrótta eru vel þekktir og teljum við að þeir komi til með að efla alhliða þróun okkar yngstu iðkenda. Fimleikar hafa löngum verið þekktir fyrir áherslu á styrk, tækni og liðleika sem er í senn allt sem handboltafólk hefur þörf fyrir. Þá eru eiginleikar frjálsra íþrótta eftirsóttir líka og þar má til dæmis nefna kraftþjálfun og hlaupatækni. Við hlökkum til að bjóða upp á þessa viðbót við það frábæra starf sem unnið er í handboltadeildinni í vetur.
Hér má nálgast kynningarpóster um verkefnið sem ég tel að sé að margan hátt nýtt af nálinni.