Þann 11. ágúst síðastliðinn héldum við námskeið fyrir íþróttakennara í Kópavogi þar sem áherslan var á leiðir til að tengja saman kennslu, nám og námsmat í íþróttum. Markmiðið var að gefa kennurum hagnýt verkfæri til að skipuleggja íþróttakennslu út frá því hvað nemendur eiga að læra, en ekki eingöngu út frá þeirri íþrótt eða þeim verkefnum sem farið er í.

Fyrri hluti námskeiðsins var blanda af tveimur verklegum þáttum og fræðilegri umfjöllum. Við unnum meðal annars með takt, hreyfingu og dans og skoðuðum hvernig hægt er að nota leiðsagnarmat, námsvegg og skýr markmið til að styðja við nám nemenda. Þá var fjallað um Teaching Personal and Social Responsibility (TPSR), kennslulíkan Don Hellison, þar sem ábyrgð, virðing, samvinna, sjálfstæði, forysta og yfirfærsla yfir í daglegt líf eru hluti af náminu.

Í verklegum dæmum var meðal annars unnið með dans, takt, stórbolta og háttvísi. Áherslan var á að skapa fleiri tækifæri fyrir nemendur til að taka ákvarðanir, vinna saman, fá endurgjöf og ígrunda eigið nám. Leiðsagnarmat var þannig skoðað sem hluti af kennslunni sjálfri – leið til að styðja nám á meðan það á sér stað, fremur en eingöngu að mæla árangur í lokin.

Námsveggur dagsins… blanda af fyrri og seinni verklega

Ég vil þakka Kópavogsbæ kærlega fyrir tækifærið til að vinna með kennurunum fyrir frábæra þátttöku, áhuga og góðar umræður. Þá vil ég þakka Kjartani Stefánssyni, meðkennara mínum á námskeiðinu, sem sá um seinni hluta dagsins og gerði það gríðarlega vel.

Það var ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi er á því að þróa íþróttakennslu áfram og skapa enn betri tækifæri fyrir nemendur til að læra, hreyfa sig og taka ábyrgð.

Leave a comment

Velkomin!

Ég heiti Sveinn Þorgeirsson og er íþróttaunnandi, eiginmaður og þrefaldur faðir og Fjölnismaður búsettur í Mosfellsbæ.

Meira frá mér á öðrum miðlum…