Ég var byrjaður að kenna við Borgarholtsskóla þegar stytting framhaldsskólans var kynnt 2014. Þegar breytingarnar komu í ljós vöknuðum við íþróttakennarar upp við vondan draum. Upp undir 50% af umfangi íþrótta í kjarna stúdentsprófs hafði verið skorið niður (úr 8/140 gömlum einingum, niður í 4-6 af 200 fein), þó breytilegt eftir útfærslu skóla. Krísufundir voru boðaðir, – en við vorum of sein. Ferlinu var lokið, baráttan töpuð áður en við hófum hana.

Það er vel þekkt að þau sem standa að baki skólaíþróttafaginu, þurfa stöðugt að berjast fyrir viðurkenningu þess innan skólakerfisins, – þótt ótrúlegt sé. Því öll virðumst við sammála um mikilvægi heilbrigðra lífshátta þar sem regluleg ánægjuleg hreyfing er viðhöfð. Hreyfing sem við veljum, ráðum við og njótum. Til þess þarf hreyfigetu og sjálfstraust til að prófa, þróa, beita, viðhalda og njóta hreyfinga. Þessi vegur er vandrataður, en mikils virði.

Fresturinn liðinn – hvar eru íþróttir og hreyfing?

Á miðnætti 26. október lauk fresti til að setja inn athugasemdir í samráðsgátt stjórnvalda Sjá Island.is samráðsgátt mál 4357. Ég notaði tækifærið og skrifaði stutt innlegg sem má nálgast hér: Umsögn um drög að tillögu tilþingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlunmenntastefnu til 2030

Þar segi ég meðal annars…

Hvorki skólaíþróttir né hreyfing á skólatíma eru nefndar í aðgerðum, þrátt fyrir meginmarkmið um aukna farsæld. Ég sé hlutverk fagsins og aukna almenna hreyfingu innan skóladags barna sem undirstöðuatriði árangursríks skólastarfs.

Ég fagna þeirri umræðu sem hefur átt sér stað um menntakerfið og hef trú á að út úr því ferli komi betra kerfi, fyrir okkur öll. Það sem ég hef þó áhyggjur af er að hvergi er minnst á hlut hreyfingar eða skólaíþróttafagsins í þessari umræðu.

Viðmiðunarstundaskrá er til endurskoðunar og aukinn tími er boðaður í íslensku, stærðfræði og náttúrufræðigreinum. Þetta eru fög sem hafa fengið umfjöllun því árangur þar er mældur reglulega og við höfum áhyggjur af þróuninni.

Mynd úr https://eldri.adalnamskra.is/adalnamskra-grunnskola/kafli-8 og https://www.adalnamskra.is/grunnskoli/kafli-8-inntak-og-skipulag-nams

Eins og sakir standa fá skólaíþróttir um 8,93% af vikulegum kennslutíma í grunnskóla að jafnaði. Ef að stétt íþróttakennara gerir ekki átak í því að koma sjónarmiðum fagsins á framfæri óttast ég að niðurstaðan verði sú sama og í framhaldsskólanum fyrir rúmum áratug, – hressilegur niðurskurður.

En ef við þorum að taka umræðuna verðum við spurð.

Fyrir hvað stendur fagið?

Hvað eiga nemendur að læra?

Aðalnámskráin liggur fyrir, en framkvæmd er í höndum kennara. Í grein sem ég tók þátt í að skrifa með dr. Aroni Laxdal (2023) fórum við yfir þrjú helstu þemu sem líkleg eru að verði beint gegn faginu í gagnrýnni umræðu. Þar opnum við á orðunum…

Mögulegar afleiðingar núverandi áherslna eru fjölmargar og margþættar, og geta haft neikvæð áhrif á viðhorf ákveðinna nemenda til hreyfingar og almennrar líkams- og heilsuræktar til lengri tíma. Með ákveðnum breytingum væri hægt að bjóða flestum nemendum upp á kennslu við hæfi; þar sem innri gildi hreyfingar, samvinna og háttvísi fengi meira vægi en núverandi áhersla á líkamlegt atgervi og færni í einstökum íþróttagreinum.

Hvernig svörum við?

Gagnrýnin sem við Aron settum fram í Skólaþráðum árið 2023 beinist að okkur sjálfum, íþróttakennurum og þeim sem mennta þá. Ef við tökum hana ekki alvarlega mun umræðan áfram snúast eingöngu um önnur fög og aðrar áherslur. Það mun einungis festa í sessi þá tilfinningu sem margir íþróttakennarar á Íslandi virðast hafa um jaðarsetningu fagsins og að kennslan skipti litlu máli, að minnsta kosti í samanburði við kollega sína í Tyrklandi (sjá rannsókn Sakallı et al 2026). Hvað er þá til ráða?

Í fyrsta lagi þurfum við að hætta að réttlæta fagið fyrst og fremst með heilsurökum. Þrjár 40 mín kennslustundir á viku (með sundi) duga skammt í átt að markmiðum um 60 mínútna daglega hreyfingu. Ef það er helsta réttlætingin er umræðan töpuð áður en hún hefst, því það þarf að byrja á því sem börnin eiga að læra. Heilsa er afrakstur fjölda daglegra ákvarðana yfir ævina alla, í gegnum ólík æviskeið. Við þurfum að byggja undir getuna til að meta og taka þær ákvarðanir og framkvæma. Styrkur fagsins liggur í því sem nemendur eiga að læra eins og hreyfingar, samvinnu, þrautseigju og háttvísi. Áhersla þarf líka að vera á uppbyggingu sjálfstrausts sem þarf til að prófa, velja og njóta hreyfingar alla ævi. Mér þykir hugtakið hreyfilæsi (physical literacy) ná vel utan um þessi markmið – en meira um það síðar.

Í öðru lagi þurfum við að skýra hvernig skólaíþróttir eru frábrugðnar skipulögðu íþróttastarfi. Í skólanum er þátttaka skylda og getan í hópnum margbreytileg. Markmiðið er að allir nemendur eigi tækifæri til að nái árangri, ekki að bara nokkrir vinni og hinir tapi. Þegar keppni og líkamleg frammistöðupróf ráða ferðinni verðlaunum við fyrst og fremst þau sem æfa þegar utan skóla, og þau sem hafa góð íþróttagen. Skýr námsmarkmið í hverri kennslustund (helst upp á vegg) og fjölbreytt hreyfitengd verkefni eru góð byrjun.

Í þriðja lagi þurfum við faglegan grunn. Íslenskar rannsóknir á skólaíþróttum eru enn af skornum skammti og umræðan nær sjaldnast lengra en stöku fréttir um kvíða fyrir sundi eða píptesti. Kennaramenntunin þarf að greina skýrar á milli þjálfunar og kennslu, og rannsóknir að aukast. Starfandi kennarar þurfa líka vettvang til að þróa starf sitt og deila reynslu. Það er í anda þess sem við í HR höfum staðið fyrir með Haust- og Vetrarmótum (síðustu 11 annir núna).

Ekkert af þessu gerist á einni nóttu, og þó – breytingar eru boðaðar og vinnan er hafin. Stefnt er að uppfærðri Aðalnámskrá innan tveggja ára. Við megum ekki loka augunum og vona það besta, eins og gerðist við styttingu framhaldsskólans. Við þurfum að hafa svörin við því fyrir hvað fagið stendur. Ef við höfum þau ekki, óttast ég að við séum úr leik.

SÞ

Heimildir til stuðnings

Laxdal, A., & Thorgeirsson, S. (2023, May 12). Til umhugsunar um framtíð skólaíþrótta – Skólaþræðir. Skólaþræðir. http://skolathraedir.is/2023/05/12/til-umhugsunar-um-framtid-skolaithrotta/

Sakallı, D., Þorgeirsson, S., Einarsson, I., & Şenel, E. (2026). A cross-national study of physical education teachers’ marginalisation, isolation, perceived mattering and professional role stressors in Türkiye and Iceland. European Physical Education Review, 1356336X261476559. https://doi.org/10.1177/1356336X261476559

Leave a Reply

Velkomin!

Ég heiti Sveinn Þorgeirsson og er íþróttaunnandi, eiginmaður og þrefaldur faðir og Fjölnismaður búsettur í Mosfellsbæ.

Meira frá mér á öðrum miðlum…